SKÁLDSAGA Á ensku

Greenmantle

Sagan Greenmantle eftir John Buchan er önnur sagan í ritröðinni um ævintýramannninn Richard Hannay. Var hún fyrst gefin út árið 1916 og kom í kjölfar skáldsögunnar The Thirty-Nine Steps sem einnig er að finna hér á Lestu.is. Urðu sögurnar um Hannay allt í allt fimm talsins.

Sagan gerist á tímum fyrri heimstyrjaldarinnar og nú er Hannay beðinn um að rannsaka orsakir óeirða meðal múslima í Miðausturlöndum. Hann heldur til Konstantínópel til fundar við Sandy vin sinn. Þar þurfa þeir að reyna að koma í veg fyrir að Þjóðverjar fái fengið innfædda í stríð gegn Englendingum.

Sagan naut gríðarlegra vinsælda þegar hún kom út og mun hafa verið í sérstöku dálæti hjá rússnesku keisarafjölskyldunni meðan hún beið þess hvað verða vildi árið 1917. Bókin er vel skrifuð, einkum sumir kaflar hennar, og árið 1957 valdi hinn kunni rithöfundur Graham Greene fyrsta kafla bókarinnar í bók sína The Spy's Bedside Book, en í hana valdi hann brot úr bestu njósnasögum allra tíma.


HÖFUNDUR:
John Buchan
ÚTGEFIÐ:
2016
BLAÐSÍÐUR:
bls. 372

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :